GJALDSKRÁ
- Tímagjald
1.1 Almennt tímagjald
EVA Lögmenn starfa almennt á grundvelli tímaskráningar og greiðast 23.900 kr. fyrir hverja unna klukkustund.
Þegar verk er unnið á grundvelli tímaskráningar skal lögmaður færa skrá um þá tíma sem til verksins fara og við hvað er unnið.
Viðskiptavinur á rétt á afriti af tímaskýrslum til skýringar á reikningi og skulu tímaskýrslur að jafnaði fylgja reikningi.
1.2 Álag á grunngjald
Heimilt er að bæta við grunngjald samkvæmt grein 1.1. gjaldskrár þessarar álagi í sérstökum tilvikum. Álag sem nemur 20% bætist við almennt tímagjald í ákveðnum tilvikum. Slíkt álag getur komið til vegna vinnu sem nauðsynlegt er að inna af hendi utan hefðbundins skrifstofutíma eða með stuttum fyrirvara.
- Málflutningur fyrir dómstólum og úrskurðarðaðilum
2.1. Í málum sem eru munnlega flutt eða gagnaöflun fer fram eftir þingfestingu skal þóknun reiknuð sem hér segir: Grunngjald kr. 150.000 kr. að viðbættum 15% af stefnufjárhæð og vöxtum, allt að kr. 6.500.000,-, 7% af næstu kr. 10.500.000,- og 4% af því sem umfram er.
2.2 Í málum sem heimilt er að reka samkvæmt 17. Kafla einkamálalaga, þar sem ekki fer fram gagnaöflun eftir þingfestingu eða tekin eru til áritunar á þingfestingardegi, skal grunngjald þóknunar vera 30.000 kr. að viðbættum 10% af stefnufjárhæð og vöxtum, allt að kr. 6.700.000, 5% af næstu 9.400.000 kr. og 3% af því sem umfram er.
2.3 Rétt er að krefja sérstaklega um þóknun fyrir flutning um formhlið máls, fyrir höfðun og rekstur vitnamáls og fyrir dómkvaðningu matsmanna og meðferð matmáls.
- Skjalagerð
3.1. EVA Lögmenn bjóða upp á margvísleg lögfræðileg skjöl á föstu verði. Um eftirfarandi tegundir skjala er um að ræða:3.2. Viðskipti einstaklinga og fyrirtækja
Kröfulýsing í þrotabú eða dánarbú 20.000 kr.
Umboð 10.000 kr.
Leigusamningur 15.000 kr.
Kaupsamningur og afsal um fasteign 40.000 kr. ( ásamt 1,5% af söluverði)
Afsal 10.000 kr.
Skuldabréf 25.000 kr.
Tryggingabréf 25.000 kr.
Ráðningarsamningur 25.000 kr.
Uppsagnarbréf 10.000 kr.
Aðfarabeiðni 15.000 kr.
3.3.Fjölskyldumálefni
Kaupmáli 30.000 kr.
Fjárskiptasamningur v/samvistarslita 30.000 kr.
Forsjársamningur 30.000 kr.
Umgengnissamningur 20.000 kr.
Erfðaskrá 30.000 kr.
Þóknun vegna annarra tegunda skjala má semja sérstaklega um áður en vinna lögmanns hefst.
- Innheimta
4.1. Almennar innheimtur
Grunngjald innheimtuþóknunar er 10.000 kr., en við bætist:
25% af fyrstu kr. 85.000.-
10% af næstu kr. 795.000.-
6% af næstu kr. 4.500.000.-
4% af næstu kr. 5.000.000.-
3% af því sem umfram er.
Reikna skal innheimtuþóknun af samanlagðri fjárhæð höfuðstóls og vaxta. Kröfueigandi er ábyrgur gagnvart skrifstofunni fyrir greiðslu innheimtuþóknunar.
4.2 Innheimta skaða- og slysabóta
Fyrir uppgjör og samninga um tjónsbætur er ekkert grunngjald en þóknun stofunnar er 10% af tjónsbótum.
- Útlagður kostnaður
5.1. Til viðbótar við þóknun greiðir viðskiptavinur allan útlagðan kostnað lögmannstofunnar í máli hans, þ.m.t. ferða- og aksturskostnað og kostnað vegna opinberra gjalda, læknisvottorða og matsgerða.
5.2. Þurfi starfsmaður stofunnar að ferðast vegna starfa sinna skal gjaldfæra 7 klst. á hvern heilan ferðadag, en að auki skal greiða fyrir þann tíma sem unnið er umfram áðurgreindar 7 klst.
6. Virðisaukaskattur
Við fjárhæð þóknunar samkvæmt greinum 1 og 2 þessarar gjaldskrár bætist virðisaukaskattur í ríkissjóð samkvæmt gildandi lögum. Við gildistöku gjaldskrár þessarar er virðisaukaskattur 24%.
7. Áskilnaður
EVA Lögmenn áskilja sér rétt til þess að krefjast greiðslu mánaðarlega eftir því sem verki vindur fram.
- Til viðskiptamanns
Viðskiptamanni ber að kynna sér gjaldskrá þessa og er hann ábyrgur fyrir greiðslu þóknunar og útlagðs kostnaðar, hvort sem hún fæst greidd úr hendi gagnaðila eður ei.
- Gildistaka
Gjaldskrá þessi tekur 1. janúar 2016